Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á heimasíðu Bókaútgáfu Tinds. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.

Rafbækur (eBooks)

Idol - Stjörnuleit

Idol - Stjörnuleit

Idol-Stjörnuleit er vinsælasti sjónvarpsþátturinn sem Stöð 2 hefur staðið að. Öll þjóðin fylgist spennt með. Föstudagskvöld eru heilög þegar Idol þátturinn er sýndur. Spennan stigmagnast eftir því sem líður á keppnina. Í þessari bók er allt að finna um Idol. Fylgst er með keppendum frá upphafi og alveg þar til ný Idol-stjarna er krýnd – og áheyrnarprufunum 2004. Bókin er 180 bls. í stóru broti og öll í lit. Óvenju glæsileg og eiguleg bók. Hún er fyrst og fremst létt og skemmtileg enda eru litmyndir á hverri blaðsíðu. Höfundar eru Helgi Jónsson rithöfundur og Jónatan Grétarsson, sem hefur tekið myndir af Idol fyrir Séð og heyrt. Þetta er bók sem krakkar á öllum aldri biðja um og allir hinir vilja eiga.


Höfundur: Helgi Jónsson

ISBN: 978-9979-9651-1-8
Bls. 170

Skrifaðar bækur:
Bókaútgáfan Tindur • Kt. 450913-0810 • Lerkilundur 32 • 600 Akureyri
Sími: 777 2777 • Email: tindur@tindur.ishelgihjojonsson@gmail.com
Heimsæktu okkur á Facebook